Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Ka e ah gjérast?
Spurði ég bara þegar allir voru að koma og segja mér að ég væri að fara að taka þátt í fegurðarsamkeppni!
Ah! Ég?
Ég vissi ekki að ég væri eitthvað falleg! Ég er bara svo hóvær mey og hrein og fróm í kvenleika mínum, bíðandi eftir prinsinum á hvíta hestinum híhí. Verst hvað það er erfitt að fá hvíta hesta nú til dags! Hahah! Nei djók! Híhí! Góður þessi! En... vitiði hvað? Við vorum látnar ganga um og gera eitthvað svona hæfileikaríkt og ÉG VANN!!!! Ó mæ, ég var svo ÓGEÐSLEGA HISSA! Ég fattaði ekki að það væri verið að segja nafnið mitt af því að allar hinar stelpurnar voru, að mér fannst þangað til núna, svo miklu fallegri en ég! Það tók mig alveg klukkutíma að fatta að það væri verið að kalla upp nafnið mitt! Ljóska! Híhí! Já, og það frá móðir náttúru! Haha, algjör!
Ég vann:
- BIKAR!
- Blómakransa. Ég er samt ekki dáin. Hí hí. NEI, GRÍN!! Haha..iiiiii ein ógeðsleg! Úps! ;) bara djókur!
- 9 Þjófalykla eftir Hermann Stefánsson. Pabbi elskar hann, held að þeir þekkist. Hann var með pabba í Víetnam... æ sorglegt RIP NAM, minnir mig á 911 :´( RIP 911. Bókin er um reynslu pabba og Hermanns í stríðinu. Oh, hata stríð. Stríð :´(
- Blævæng. Sem brotnaði reyndar strax :´( RIP .
Síðan þegar ég var búin að vinna allar hinar stelpurnar þá spruttu fram ljósmyndarar eins og lúpínur og tóku myndir af mér með verðlaunin.
Ungfrú Lanzarote 2007!!!!!!!
Og einnig.... Ungfrú hafgúa hreinsilogur 2007!!!
Jæja. Nú hefur líf mitt svo sannarlega breyst. Ótrúleg tækifæri hafa borist mér og ég get kannski farið og hjálpað FÁTÆKU FÓLKI sem fær ekkert að borða. Úff fátækt fólk RIP :´(. Pabbi og Hermann Stefáns sáu svoleiðis í the Nam. Úff :´(. Varúð skal höfð í nærveru sálar, RIP, love, pís :(
Oh, svo gaman ad vera svona falleg. En vid skulum ekki gleyma : pain is beautiful.
--------------------------------
EKKI LESA SMÁA LETRIÐ!
Fegurð Lanzarote var ekki fegurðarsamkeppni heldur rútuferð um norður Lanzarote þar sem hellar, blóm og strendur voru skoðaðar.
Hvad eiga Napóelon
Búkassa (gaurinn í Afríku sem geymdi óvini sína í frysti og át til hátídabrigda)
og Ásdís Rán módel Íslands sameiginlegt?
Jú thau krýndu sig oll sjálf.
Ég laet ekki segja mér hver sé fallegastur, frekar en ljótastur. Ég krýni mig bara sjálf theim titlum sem mér sýnist. Og hana nú!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)